Byrjun janúar 2007:
Café Sigrún: hér er að finna margt gott og áhugavert - án hvíts sykurs, hvíts hveitis og aukaefna. Sjá: www.cafesigrun.com
Ég bakaði gríðarlega góðar brauðbollur frá henni, mér leist eiginlega ekki á að það væri kókosmjöl í þeim en lét slag standa, og þær eru svona líka góðar! Stundum verður maður að vera ævintýragjarn.
9. janúar 2007:
Í gærkvöldi fékk ég hrós frá manninum mínum fyrir pastað sem ég reiddi fram. Þetta var nú ósköp einfalt og gert úr afgöngum, hér ætla ég að skrifa niður hvað var í þessu svo ég gleymi því ekki.
Kjúklingaafgangapastaréttur Doktors Ingibjargar
Grillaður kjúklingur - afgangar, hreinsa kjötið af beinunum og hafa í frekar litlum bitum.
1/2 rauðlaukur saxaður í mjóa strimla, 1/2 til 1 rauð paprika söxuð (magn bara eftir smekk og birgðum), slatti af svörtum ólífum, 5-6 saxaðir sólþurrkaðir tómatar, mauk úr sólþurrkuðum tómötum (í krukku), fetaostur, salt, pipar, Italian herbs.
Pastaskrúfur eða slaufur.
Steikja rauðlauk og papriku í ólífuolíu, setja tómatmauk saman við eftir smekk, krydda og bæta kjúklingi út í og hita saman. Bæta ólífum útí ásamt sólþurrkuðum tómötum og fetaosti (slatta úr krukku). Á meðan ertu líka að sjóða pastað. Síðan læturðu vatnið leka af pastanu og bætir því svo út á pönnuna með hinu, hrærir saman og smakkar til.
Berist fram með parmesan osti og góðu brauði ef vill.
11. janúar 2007:
Ég fattaði að ég gleymdi fetaostinum hér að ofan, er búin að bæta honum við!
13. janúar 2007:
Mig langar til að deila með ykkur uppskrift að kryddsmjöri sem ég hafði með nautasteikinni á gamlárskvöld. Þetta passaði mjög vel við nautakjötið.
Tómata- og gráðaostakryddsmjör
5 stk sólþurrkaðir tómatar, saxaðir smátt
1-2 tsk hvítlaukur, fínt saxaður
60 gr smjör
100 grömm gráðaostur
4 stk svartar ólífur, fínt saxaðar
Látið smjör og ost ná stofuhita (ég flýtti fyrir með örbylgjunni á lágum hita). Blandið öllu saman og kælið í hentugu formi.
Önnur uppskrift á þessum herrans degi...
Ég elda oft og iðulega kjúkling með kókos-karrí-mangósósu, sem ég baka í ofni. Upphaflega hugmyndin kom frá kollegum mínum Guðjóni og Brynhildi, sem eru miklir kokkar og koma oft með matarafganga í skólann og borða í hádeginu. Maturinn þeirra ilmar yfirleitt afar vel og þá fæ ég þau oft til að segja mér hvernig þau elduðu hann. Þetta hér að neðan, sem ég hef þróað upp úr uppskrift frá þeim og viðbótum frá mér sjálfri, er mjög einföld og góð matreiðsluaðferð, og hér að neðan er hráefnið og aðferðin, svona cirka... Þessi réttur er vinsæll, sérstaklega hjá unga manninum.
Kjúklingur í kókos-karrí-mangósósu
Kjúklingabitar (bringur, læri, leggir, blanda af þessu öllu eða ein tegund).
1-2 dósir kókosmjólk, fer eftir því hvað þú ert að elda mikinn kjúkling.
Mango-chutney og grænt karrímauk frá Rajah.
Salt og pipar.
Smátt saxaðar gulrætur og/eða blómkál.
Langbest er að brúna fyrst kjúklinginn á pönnu (velta honum jafnvel upp úr hveiti með karríi, salti og pipar fyrst), raða honum síðan í eldfast mót. En fljótlega leiðin, og sú sem ég vel oft vegna tímaskorts og leti, er bara einfaldlega að dömpa kjúklingnum hráum í mótið. Svo hitarðu upp kókosmjólkina í potti, bætir karrímauki, mango-chutney, salti og pipar útí og smakkar til (magn af þessu öllu eftir smekk, betra er þó að láta þetta vera í sterkara lagi ef kjúklingurinn liggur bara óbrúnaður í mótinu, því að safinn úr honum deyfir sósuna við eldun). Þessu er svo hellt yfir kjúklinginn í forminu, gulrótum og/eða blómkáli hent ofan og og blandað saman við. Bakað í ofni við 200 gráður Celsius í 35-50 mínútur, fer eftir magni, stærð bita, hvort kjúklingurinn er forsteiktur, og ofninum sjálfum. Berist fram með hrísgrjónum.
18. janúar 2007:
Ég bakaði aldeilis fína "vítamínköku" fyrir prófakaffið í MA í fyrrakvöld. Hún mæltist vel fyrir og mér finnst hún rosalega góð og ekki spillir fyrir að hún er frekar "holl". Uppskriftina er að finna í Kökublaði Vikunnar sem kom út fyrir síðustu jól. Mjög einfalt að baka hana fyrir utan það að saxa döðlur og súkkulaði! Ég reyndar þurfti aðeins að aðlaga hana að innihaldi skápanna heima, setti smá möndlur í staðinn fyrir valhnetur, og í stað hrásykurs notaði ég blöndu af ljósum púðursykri og venjulegum sykri, og í aðeins minna magni en uppskriftin segir til um. Yummie!
24. júní 2007
Köld sósa (góð með lambakjöti):
Sýrður rjómi, kramin hvítlauksrif e. smekk, mauk af sólþurrkuðum tómötum, smátt söxuð rauð paprika (smá slatti), sítrónusafi, tabascosósa, salt og pipar. Athugið að þetta verður bara að smakkast til og gera eftir smekk hvers og eins.
Vítamínbomba:
1 bolli saxaðar döðlur
1 bolli hakkaðir valhnetukjarnar
1/2 bolli 70% súkkulaði, saxað
1 tsk vanilludropar
2 egg
1tsk lyftiduft
1 bolli hrásykur
Allt hráefnið er sett í skál og hrært saman með sleif. Hellið deiginu í smurt form og jafnið út. Bakað við 180-200 gráður Celsius í 30-40 mínútur. Athugið að kakan getur fest við botninn á forminu, gæti þurft að nota hníf til að ná henni af. Kælið.
Þeytið svo slatta af rjóma og setjið gott lag á kökuna og smyrjið á barmana á henni líka. Takið 2 öskjur af jarðarberjum og skerið í bita (skiljið nokkur heil ber eftir til að skreyta), dreifið yfir kökuna. Setjið svo eitt box af bláberjum þar yfir og í kring um kökuna. Dreifið að lokum heilum jarðarberjum í kringum kökuna. Sigtið með flórsykri ef ykkur finnst það fallegra. Einnig gæti verið gott að dreifa smá bræddu súkkulaði yfir (í bunu).
26. nóvember 2007
Unaðsleg skúffukaka (Gestgjafinn, 12 tbl. 2003, bls. 85)
Notið form sem er sirka 20x30 cm.
Kakan:
250 g hveiti
150 g sykur
150 ljós púðursykur
4-4 1/2 matskeið Kötlu Eðal kakó eða gott hollenskt kakó, td. Van Houten
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 egg
2/3 bolli nýmjólk
1/2 bolli súrmjólk eða ab-mjólk
125 g brætt smörlíki (kælt örlítið) eða smjörlíki og olía til helminga
1 tsk vanilludropar
Hitið ofninn í 175-180 gráður á Celsius. Smyrjið bökunarmótið vel. Blandið þurrefnum saman í skál. Hrærið eggjum, mjólk, súrmjólk, smjörlíki (og olíu ef hún er notuð) og vanilludropum saman í annarii skál þar til allt hefur blandast vel saman. Blandið nú innihaldi beggja skálanna saman og hrærið með písk þar til allt hefur samlagast vel, en þó ekki lengur en í 2 1/2 mínútu (innskot IÁ: ég hrærði þetta nú bara örstutt í hrærivélinni). Látið deigið í mót og bakið í 20-30 mín (innskot IÁ: ég þurfti að baka þetta í um 40 mínútur, örugglega misjafnt eftir ofnum).
Kremið (MJÖG gott krem):
150 grömm mjúkt smjör
1 bolli flórsykur
1/3 bolli kakó fyrir meðaldökka köku (1/2 bolli fyrir dökka köku)
2 msk síróp
1 tsk vanilludropar
nokkrar msk mjólk (fer eftir því hve þykkt kremið á að vera)
Hrærið smjörið þar til það er orðið kremkennt. Sigtið flórsykur og kakó saman og blandið því síðan saman við smjörið smátt og smátt. Bætið mjólkinni varlega útí (gott er að bæta henni útí þegar kremið er að verða of þykkt). Hrærið að lokum vanilludropum og sírópi saman við. Smyrjið kreminu síðan á kalda kökuna.
21. mars 2008
Rupert Everett grænmetisréttur:
(frá Hildi Hauks, og upphaflega úr Rachael Ray þætti)
Fyrir 6-8, gott er að frysta afgang ef einhver er og grípa til seinna þegar þú nennir alls ekki að elda.
1-2 eggaldin
1 lítill blómkálshaus, eða 1/2 stór
1 sæt kartafla eða 2-3 venjulegar
1 laukur
1 rauð paprika
2-3 hvítlauksrif
1 ds niðursoðnir tómatar í teningum (gott að velja með e-u góðu bragði)
1 ds kjúklingabaunir
1 bolli mango chutney (ca. ein krukka mango chutney frá Rajah - 340 gr)
2 msk karrímauk (curry paste)
2-3 bollar grænmetis- eða kjúklingasoð
Setjið stóran pott á helluna með slatta af ólífuolíu. Byrjið á að mýkja brytjað eggaldinið í olíunni og eftir smástund bætið við brytjuðu blómkáli og kartöflum í bitum. Leyfið þessu að malla saman í heitum pottinum í nokkrar mínútur. Bætið svo út í þetta söxuðum lauk, papriku, hvítlauksrifjum og ca. 2 bollum af grænmetis- eða kjúklingasoði. Leyfið þessu að sjóða í svona 5-7 mínútur. Því næst skellir maður í blandarann mangu chutney, karrímauki og bolla af grænmetissoði. Allt sett á fulla ferð í eina mínútu. Síðan er þessu gúmmulaði hellt út í pottinn ásamt tómötunum og kjúklingabaununum. Þessu er leyft að hitna vel í gegn og malla í svona 5 mínútur. Gott er að láta pottinn standa í smástund eftir að hann er tekinn af hellunni áður en maturinn er borðaður, því annars brenna sig allir á tungunni á sjóðheitu grænmeti og finna ekki hið ljúffenga sæta karríbragð af réttinum. Gott er að bera þetta fram með hrísgrjónum og nanbrauði, eða eftir efnum og aðstæðum hverju sinni 
Nan-brauð:
(af vefsíðunni www.dagur.net, uppskriftin er úr ranni konu að nafni Rósa Ragúels)
15 brauð - gott er að frysta afgang og eiga seinna, hita í 5-10 sekúndur í örbylgjuofni þegar þau eru búin að þiðna.
200 ml mjólk
2 msk sykur
1 poki þurrger
600 gr hveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk ólífuolía
1 dós hrein jógúrt (180 gr)
1 msk Maldon-salt
1 msk indversk kryddblanda (t.d. garamasala eða eitthvað annað gott krydd sem ykkur dettur í hug)
25 gr smjör
1-2 hvítlauksrif, smátt söxuð
búnt af fersku kóríander.
Setjið ger og sykur í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mín. Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við germjólkina. Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt og bætið við hveiti ef ykkur finnst það of blautt. Látið deigið hefast í 1 klst. við stofuhita. Hitið ofninn í 275 blandið kryddinu saman á disk.
Skiptið deiginu í ca 15 hluta og hnoðið kúlur úr þeim. Fletjið síðan ´kúlurnar út nokkuð þunnt og þrýstið þeim ofan í kryddblönduna. Raðið brauðunum á plötu sem er klædd bökunarpappír og bakið þau í 5 - 7 mín. Þið getið líka bakað þau á efri grind á gasgrilli. Bræðið smjörið í potti, setjið hvítlaukinn saman við smjörið og dreypið því strax yfir heit brauðin. Klippið kóríander síðan yfir allt saman. Berið strax fram meðan brauðin eru heit.
23. mars 2008:
Á föstudaginn langa, það er í fyrradag, eldaði ég böku sem ég hef stundum gert og er uppskriftin úr BBC Good Food - blaði sem ég fékk þegar ég bjó í Skotlandi. Hún heitir Goat's Cheese and Tomato Tart og er mjög góð, ég reyndar hef breytt henni aðeins með því að hafa grillaðar paprikur ofan á auk tómata. Hvað um það, ég nenni ekki að tíunda þá uppskrift meira hér, en áhugasamir geta beðið um ljósrit
. Á meðan bakan var í ofninum vippaði ég fram einum frumsömdum eftirrétt, sem ég ætla að punkta niður hér til að gleyma ekki hvernig hann var samsettur - því góður var hann. Hvað á að kalla hann? Bara...
Jarðarber á fingurkexi með karamelluostabúðingi
(ekki sérlega þjált nafn, en verður að duga)
Setja fingurkex í botninn á skál (rúmlega hálfan pakka)
Bleyta í með ferskum appelsínusafa
Smyrja smá lagi af rjóma yfir
Ein dolla af ferskum jarðarberjum sem eru brytjuð niður, dreifið þeim öllum (nema smá til skrauts) ofan á rjómann.
Cirka dolla af mascarpone osti hrært saman við cirka 150-200 ml þeyttan rjóma
Út í þetta sprautið þið dágóðum slatta af Dr Oetker karamellusósu (í túbu) og hrærið saman, smakkið til.
Smyrjið þessu kremi svo efst í skálina og skreytið með jarðarberjum og súkkulaðispæni.
Ready!

1. apríl 2008:
Eldaði þessa uppskrift á laugardaginn. Mjög gott. Má fannst of mikið sítrónubragð en mér fannst það mjög fínt. Geri hver eftir eigin smekk.
http://www.bbcgoodfood.com/recipes/5965/smoked-salmon-and-lemon-risotto
15. apríl 2008:
Eldaði þennan fína pastarétt í gærkvöldi sem ég skáldaði upp úr hráefni úr ísskápnum. Ekki það hollasta en mjög gott.
Pasta með ostasósu
Fyrir 4-6
1 msk Isio olía
1/2 blaðlaukur, skorinn í sneiðar
1/2 laukur, saxaður
1/2 rauð paprika, söxuð
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
4-5 sveppir, sneiddir
5-6 sneiðar reykt skinka (frá Kjarnafæði er góð)
8-10 sneiðar pepperóní
300 ml matreiðslurjómi
2/3 mexíkóostur, skorinn í litla bita
1/2 paprikuostur, skorinn í litla bita
1/4 tsk ítölsk kryddblanda
1/2 msk grænmetiskraftur (duft í svörtum dósum frá Oscar)
Salt og pipar eftir smekk
400 grömm pasta
Grænmetið er mýkt í olíunni í nokkrar mínútur, svo er rjómanum hellt útí og þar næst er osturinn settur út í í bitum, og allt látið malla við vægan hita þar til osturinn er bráðinn. Kryddið með ítölsku kryddblöndunni og grænmetiskraftinum, og bætið skinku og pepperóní út í; látið malla í 2 mínútur eða svo til að hita allt í gegn. Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum og berið það fram með sósunni til hliðar, ásamt rifnum ferskum parmesanosti. Gott er að hafa heit smábrauð með þessum rétti.
8. júní 2008:
Fékk þessa uppskrift frá Hildi Hauks um daginn:
Jambalaya
3 msk ólífuolía
2 rauðlaukar
2 hvítlauksgeirar
2 grænar paprikur
2 eggaldin
3 tsk Cajun krydd
1 tsk Cayenne pipar (hrikalega gott)
Salt og svartur pipar
1 dós af tómötum
Lítil dós af maískornum
300 g hrísgrjón
1/2 l grænmetissoð (heitt)
Vorlaukur
Kóríander
Grænmeti er skorið í munnbitastærð og steikt rólega á pönnu í réttri röð. Kryddað yfir með öllum þessu yndislegu kryddblöndum. Tómatadósinni og maískornum bætt út í suðu hleypt upp. Síðan er hrísgrjónin sett út og grænmetissoð og þessu leyft að bubbla í 15 mínútur eða þangað til allur vökvi er gufaður upp. Rétt áður en þetta er borið fram er vorlaukur og koríander klippt til og sett út í.
Ég bar fram naan brauð með og hafði steikt kjúklingabringur í bitum sem ég hrærði saman við í lokin. Þannig varð þetta kjúklingajambalaya. (HH)
Ég prófaði svo jambalayað í kvöld. Alveg ljómandi fínt. Grúskaði svolítið áður og hér er afraksturinn:
Jambalaya is a New Orleans dish that has been adopted by the Cajuns. It probably originated during the time when the Spanish ruled Louisiana (1766-1800), and the name is thought to be an amalgamation of jamón (the Spanish word for ham, a prime ingredient in early jambalayas) and paella.
Cajun kryddblanda fæst í Hagkaupum. Hinsvegar er hægt að gera sína eigin:
1 msk hvítlauksduft
1 msk laukduft
2 tsk hvítur pipar
2 tsk nýmalaður svartur pipar
1 ½ tsk cayenne pipar
2 tsk þurrkað timjan
½ tsk þurrkað oregano
Allt blandað saman í skál, geymist í kryddbauk í nokkra mánuði. (uppskrift úr The Essential Rice Cookbook)
Ég bjó líka til svindl-nan í kvöld sem kom ágætlega út:
Fín pítubrauð, bleytt með örlitlu vatni og pensluð með ólífuolíu. Lögð á bökunarplötu. Nýmöluðu salti dreift yfir og svo garam masala kryddblöndu, klippið svo ferskan coriander út á. Bakið í 170 gráða heitum ofni í uþb. 5-8 mín.
31. ágúst 2008
Var að senda Samma bróður og Önnu mágkonu þessa uppskrift að kjúklingasalati sem ég var með í skírnarveislu Jóhönnu á síðasta ári. Fékk hana í Gestgjafanum, mæli með henni, klikkar ekki. Hendi henni hér inn fyrst ég var búin að pikka hana upp hvort eð er.
Satay kjúklingasalat
(Gestgjafinn, 12. tbl. 2007, bls.14)
1pk kúskús með sólþurrkuðum tómötum
4-5 kjúklingabringur
Olía til steikingar
2 dósir Satay sósa, td. frá Thai Choice
300 g. spínat, ferskt
2 lárperur, skornar í bita
1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
400 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
200 g salthnetur
1 krukka fetaostur í kryddolíu
Útbúið kúskús samkvæmt leiðbeiningum á pakka og látið til hliðar. Skerið kjúklingabringur í teninga og steikið á pönnu. Hellið satay sósu saman við og látið krauma í nokkrar mínútur. Setjið spínat í botninn á eldföstu móti eða stórri skál og smyrjið kúskúsi ofan á það. Hellið síðan kjúklingnum ásamt sósunni yfir spínatið og kúskúsið. Dreifið lárperu, rauðlauk, kirsuberjatómötum, hnetum og fetaosti yfir og berið t.d. fram með brauði. Rétturinn er einnig mjög góður kaldur.
NB. Ég sleppti avókadóinu þegar ég gerði réttinn aftur, avókadóið verður svo fljótt ljótt á litinn (ef það er afgangur). Einnig er 300 gr spínat ansi mikið, nóg er að setja ríflega hálfan poka af spínati (150-200 grömm). Ingibjörg