...ég er hérna. Nenni bara ekki að blogga. Mikið að gera, þess á milli er ég löt og kíki í mesta lagi á Facebook. Sóla vinkona mín sagði að Facebook væri að drepa bloggið, kannski er það rétt hjá henni. Samt vil ég ekki gefa bloggið upp á bátinn strax. Mér finnst nefnilega gott að geta flett upp á tíðindum í eigin lífi svona eftir á. Minnið er orðið slæmt skiljið þið.
Annars á ég afmæli bráðum. Jóhanna er farin að standa og tekur framförum daglega. Svo skrepp ég í húsmæðraorlof til Reykjavíkur helgina 6-9. mars. Afsökunin er heimsókn til augnlæknis þann 9. mars. En aðalástæðan er auðvitað Búaballið

Er að fara að kenna eftir 5 mínútur svo að ég segi bless í bili. Ætla að reyna að bæta mig en lofa engu. Þið fylgist vonandi bara með (ef þið eruð ekki löngu búin að gefast upp á mér og hætt að heimsækja þessa síðu).
Adios!